17. nóvember 2006 klukkan 01:26
HÆ BÚIN AÐ FLYTJA MIG YFIR Á 123.IS
www.123.is/lindasplinda
bæjó
Linda Ösp Gunnarsdóttir
14. nóvember 2006 klukkan 02:45
Hæ hæ
Alltaf gott að koma heim :) eruð þið ekki annars bara hress?
Jæja nú er komið að ferðasögunni miklu!
Eins og þið vitið þá fékk Hrafntinna sína fyrstu tönn á fimmtudagskvöldið rétt áður en við fórum til Parísar, jebb við rosa stollt náttla :) en hún soldið pirruð greyjið og fékk stíl. En við vissum af seinkun um morguninn útaf veðrinu sem var þá í gangi eins og flestir vissu líka en í stað þess að fara um 8 leytið fórum við um 1 leytið eftir hádegi, sem var alltílagi, en Hrafntinna var þá orðin vel þreitt var ekkert búin að sofna frá 7 um morguninn til 1 þegar hún sofnaði í flugtaki:) en hún svaf bara í um hálftíma og var svo bara fín, sat á milli okkar og lék sér með dót og var hjá okkur til skiptis en var líka soldið pirruð að vera svona bundin og fá ekki að hreyfa sig meira hehe
en þetta gekk vel og við vorum komin rétt fyrir 5 að staðar tíma minnir mig og þá var komið að töskuveseni, en við fengum töskurnar mjög fljótlega en þurftum að bíða hátt í klukkustund eftir kerrunni!! iss þá var ég orðin þreitt og pirruð, nóg seinkun.
svo fórum við og reyndum að finna okkur leið að lestarstöðinni sem var frekar flókið og þurftum að bíða lengi í röð að lyftu og fundum hana svo og fórum í lest, og fórum svo í Metró og vorum rúmlega klukkutíma minnir mig á leiðinni að hótelinu, og vorum loksins komin þangað um hmm rétt fyrir 8 minnir mig, allavegana seint og við fórum beint á stað á horninu til að borða höfðum þá ekkert borðað síðan í vélinni.
jæja Hrafntinna sofnaði svo um hálf 10 minnir mig og svaf ekkert alltof vel vaknaði um 2svar og grét soldið og við héldum að önnur tönn væri að koma en hún svaf svo til um 8 en svo byrjaði dagurinn, fengum okkur morgunmat á hótelinu og fórum svo á flakk, byrjuðum að fara beint í mallið, man ekki hvað það hét en það var HUGE! og geðveikt flott en við gátum rétt skoðað flestar hæðar en ég hefði getað eytt öllum deginum þarna hehe og ég tapaði mér í barnadeildinni og gat ekki ákveðið mig hvað mig langaði í :) en við fórum fljótlega til að skoða Effel turninn :)
það var bara geggjað og flottur turn MAN :) ýkt stórt og við tókum fullt af myndum en við vorum ekki að fara upp því það var löng röð í liftuna og svo vorum við með dömu sem var að taka tennur og því þolinmæðin hjá henni ekki mikil að sitja lengi og slíkt
en hún var annars bara mjög góð og við fórum á hótelið og fengum okkur að borða á japönskum stað um kvöldið og Jón fékk sér sushi :) og kjöt en ég fékk mér kjúklinga bringu :) það var mjög flottur staður svo fékk hún stíl fyrir háttinn enda mjög þreitt lítil snúlla, gat mjög lítið lúrað yfir daginn
á sunnudeginum fórum við að skoða Louvre safnið og það var GEGGJAÐ! jii það var svo flott og mátti ekki taka myndir allstaðar en við náðum þó nokkrum hehe :) og svo röltuðum við þar í kring en við gátum ekki verið legni á safninu því daman náði ekki að festa svefn og var orðin óróleg og fórum við því uppá hótel og vorum komin um 3 leytið og þá fékk hún stíl og sofnaði í rúma 2 tíma þegar við vöktum hana rétt fyrir 7 að staðartíma, áttum eftir að borða, og við fundum fínan pizzustað með góðum pizzum en banansplittin hjá þeim eitthvað skrítin ehhe en ég semsagt pantaði í fyrsta sinn í ferðinni eftirrétt og ætlaði að fá bananasplitt en hann hefur miskilið mig og lét mig fá coupe de la rouge fruit! semsagt með rauðum ávöxtum og jiii þetta var svo sætt og sykurleðja að ég gat bara ekki borðað þetta hehe en ég vildi ekkert vera bögga hann með miskilningnum
fyrir utan þessi 2 skipti fannst mér ég alltaf svöng og ég gat ekki borðað almennilega í morgunmat né hádegi né miðjan dag, en náði oftast að borða um kvöldmat. Það var sko ekkert varið í matinn þarna úti og enginn góður veitingastaður með steikum eða eitthvað bara mjög mikið salat og súpa og jú BRAUÐ! hehe
en mér fannst rosa gaman að komast út og í burtu og prófa þetta allt og mér fannst æðisleg barnafötin í París ég hefði getað tapað mér, ég náði að kaupa ýmislegt á Hrafntinnu :)
pease out
Linda Splinda
Linda Ösp Gunnarsdóttir
10. nóvember 2006 klukkan 04:23
Hæ´hæ
Hrafntinna fékk sína fyrstu tönn áðan :) víí
við erum ekkert smá montin hehe
en ég var eitthvað að nudda góminn hennar og fann hart, og bað Jón um að ná í skeið og hann ýtti í góminn og við heyrðum bæði KLING KLING :)
jæja þetta var tönn í neðri góm og við' hlökkum til þegar það fer að sjást í hana hehe
jæja það er seinkun á fluginu en við reiknum með að fara uppúr hádegi
Linda Ösp Gunnarsdóttir
09. nóvember 2006 klukkan 20:56
vúhú hæ hæ:)
jæja nú styttist í þetta trúi því ekki að við séum að fara á morgun eða við leggjum af stað snemma fyrramálið og fljúgum rétt fyrir 8 :) ég er svona búin að pakka fullt en það er soldið eftir þá aðallega hennar útiföt og slíkt og líka handfarangur, þetta græja ég í kvöld :)
en hey ég ætlaði að segja ykkur á þriðjudaginn þá fór Jón í skólann og ég var farin að leggja mig aftur Hrafntinna vaknaði nebbla svo snemma og var því sofnuð aftur rúmlega 7 en jæja þá hringdi hann í mig rétt um 8 og bara hmm Linda tókst þú skóladótið úr bílnum???! ég bara Ó FUCK shitt já SORRÝ hehehe en hann bara ok, svo hringdi hann aftur og þá var kennarinn VEIKUR ahhahha talandi um að ég slapp fyrir hornið ÚFF heheh ;) bara fyndið samt, hefði verið ömurlegt að þurfa missa af tíma útaf þessu
en jæja það er núna búið að steina húsið mitt og það er ýkt flott :) og núna er gröfukall úti að moka fyrir planinu :) þannig að þetta gengur bara vel :)
ég er alveg orðin megaspennt núna alltíeinu kom svona spenna yfir mig úff hehe :)
jæja ég ætla halda áfram að pakka á meðan hún sefur
ég skrifa svo ferðasöguna eftir helgi :) víi´
bæjó
Linda Ösp Gunnarsdóttir
07. nóvember 2006 klukkan 03:01
Hæ hæ
jæja ég vildi nú aðeins monta mig á afrekum mínum hehe en ég er búin að fara 3svar sinnum í shape up og ég var sko að DREPAST úr harðsperrum um helgina úff það var svo vont ég var eins og spítukall hehe en ég er að jafna mig núna, en ég var í tíma áðan svo ég má nú búast við harðsperrum á morgun hehe
en svo finnst mér ég strax orðin svo orkumikil að ég er farin að vera duglegri hér heima til :) og það er allt svo fínt og hreint hjá mér núna, er farin að ryksuga og skúra 2svar í viku :)
en ég er búin með smá jólahreingerningu hehe eða eldhúsið :) svona næstum því, búin með alla skápa bara eldavélin og svoleiss eftir
en um annað hehe
mig er farið að hlakka soldið til að fara út, þó ég geri mér ekki ennþá grein fyrir því hehe, ég mun fatta það á morgun þegar ég fer að pakka í töskurnar og þrífa þvott og svona :) og kaupa það sem vantar s.s graut og svoleiss, svo jú auðvitað lokaða poka!! argg þessar nýju reglur eru útí hött kommon 100ml flöskur! maður er nú aldrei með svo smátt, iss en það þýðir ekki að spá mikið í því
Jón var rosa duglegur í gær og setti upp hurðahúnana og læsingar, og svo setti hana upp síðustu gardínurnar (herbergi Hrafntinnu og stofuhurð) og svo setti hann líka upp fataskápinn hennar :) ég er ekkert smá ánægð :) takk elskan :)
Mamma passaði fyrir mig áðan meðan ég var í ræktinni ,takk mamma :) og hún var víst voða góð stelpa eins og alltaf ehe
Hrafntinna var líka orðin svo þreitt að hún sofnaði hálf 8 í kvöld en hún er búin að vera rumska í um hálftíma en var að sofna aftur núna fyrir 5 mín VONANDI heheh :) en hún á það til að vakna svona upp grátandi, skil ekki afhverju, grunar að hún sé að detta í draumi eða eitthvað, jú eða gómurinn að angra hana
svo var ég að enda við að horfa á One Tree Hill, eða ég sá það í brotum því daman var alltaf að rumska og ég er´því núna með stillt á Plús HEHEH:)
jæja er þetta ekki orðið fínt blogg? ég held það bara
jæja PLÚS byrjað heheh
bæjó
Linda splinda spítukall
Linda Ösp Gunnarsdóttir
03. nóvember 2006 klukkan 02:58
sko mig hehe ég mætti í tímann í shape up hehe :)
og vá ég á eftir að deyja á morgun hehe það sem var reynt á hendurnar úff, ég vona nú að ég geti haldið á Hrafntinnu á morgun hehe
jæja núna styttist í Parísar ferðina og ég er svona loksins farin að fatta að ég er að fara út :) trúi því bara ekki ennþá og ég fer að ná í ferðatöskurnar uppá loft og svoleiss eftir helgi :)
svo var Marta að koma heim frá Flórida í gær og kom í heimsókn áðan og gaf Hrafntinnu ýkt sætt :) hún gaf henni gallapils(svona stutt gellupils) og stuttermabol og síðermabol og gallabuxur :) æði, svo keypti hún svona strigaskó bleika, man ekki hvað þeir heita eru upp að öklum bleikir á litinn... tískan í dag.. og svo líka svarta glans sparískó :) geggjaðir takk æðislega fyrir okkur Marta:)
ég hef voða lítið að segja núna annars, en ég er rosa þreitt og skvísa var að sofna og ég ætla fara snemma að sofa held ég bara, eða svona um 10 leytið
jæja bið að heilsa og kommentið svo :)
Linda Ösp Gunnarsdóttir
01. nóvember 2006 klukkan 01:28
Hæ hæ
hvað segið þið svo gott í dag?
ég segji bara allt fínt
Hrafntinna var orðin svo þreitt að hún sofnaði núna fyrir stuttu algjör snúlla :)
við kíktum í heimsókn til ömmu og afa Jóns í dag og hún skemmti sér vel að fikta í öllum spólnunum hehe
ég er búin að vera punkta niður hluti sem ég á að taka með til Parísar og það er komin smá spenna í mann :)
ég ætla fara byrja aftur í ræktinni :) sko mig ég tók stórt skref hehe ég kíkti við í perlunni áðan og rakst þá á Örn Steinar (ég ætlaði bara athuga verð og hvenær tímarnir voru) en hann náði að sannfæra mig að koma á fimmtudaginn, en ég ætlaði bara byrja á næsta násmkeiði í næstu viku en neibb hann sagði mér að koma á fimmtudaginn ehhe svo ég geri það :)
mig hlakkar bara til:) svo gaman að vera í þessum tímum, en þeir heita shape up :)
jæja ég ætla fara slaka á og horfa á tv, ég held að hún Hrafntinna gæti vaknað aftur, en það kemur í ljós, vona að hún sofi betur í nótt heldur en undanfarnar nætur, búin að vera svo ergileg í gómnum
en jæja nóg í bili
salut!
Linda Ösp Gunnarsdóttir
27. október 2006 klukkan 17:17
Hæ hæ
jæja daman er orðin 9 mánaða!! úff hvað tíminn flýgur og það eru bara 3 mánuðir í fyrsta afmælið :)
það er allt gott að frétta hér á bæ:) erum búin að bóka flugið og hótelið og förum við 10 til13 nóvember til Parísar :) vííí
ég er byrjuð að punkta smá niður hjá mér hvað þarf að taka með en ég er komin með kerru :) Begga vinkona reddaði okkur kerru :)
en klikkaða veðrið núna í dag úff það er bara brjálað rok og Heví rigning! hvað er málið? ég nenni engu í dag,.. en Hrafntinna svaf ágætlega í morgun hehe ég setti hana fyrir utan gluggann og svo vaknaði hún eftir klukkutíma og ég færði hana að hurðinni í skjól og hún hélt áfram að sofa og svaf í rúma 2 tíma :) dugleg stelpa :) en það nebbla var ekki svona veður þegar hún fór að sofa úff sem betur fer leið henni vel og var sko alls ekki kalt
en jæja þetta var svona það helsta
ég ætla reyna kíkja í heimsóknir á morgun til ömmur og afa og svoleiss
bæjó
Linda
Linda Ösp Gunnarsdóttir
24. október 2006 klukkan 02:46
Linda Ösp Gunnarsdóttir
22. október 2006 klukkan 14:07
Hæ hæ komin tími á smá blogg...
en vitiði hvað? :)
VIÐ ÆTLUM AÐ FARA TIL PARÍSAR :) við 3 í nóvember, en við eigum eftir að finna hótel betur og bóka flugið og svona, en ég ætla bara að vera vel undirbúin áður en ég geri það :)
mig hlakkar ekkert smá mikið til, ég fékk að velja áfangastaðinn híhí :) og ég er með hnút í maganum er svo spennt:) ´
ég þarf bara að finna mér góða kerru handa henni til að taka með og svona:) getur einhver lánað mér??
anyways um annað, þá er allt gott að frétta, við erum að fara að kíkja á sunnudagsrúnt hér á eftir :) þingvellir voru fyrir valinu :) hlakka til , svo geggjað veður og ætla sko að taka myndavélina með :)
en Jón og Marta fóru að reyna veiða Rjúpu í gær og það gekk ekkert en það var víst æðislegt útsýnið þar sem þau voru að labba um 8 um morguninn, fóru sko um hálf 5 og bera út moggann og fóru svo að veiða! spáiði myndi ég nenna að vakna hehe
en jæja Jón er líka ennþá lúllandi og Hrafntinna var rosa góð við okkur og lúllaði til rúmlega 7 og drakk þá og svaf svo til hálf 9 rosa næs :) er ekki vön því
jæja hmm þetta var svona það helsta í fréttum, endilega kommentið
bæjó
Linda Splinda
Linda Ösp Gunnarsdóttir